HiH sinnir útkallsþjónustu fyrir Reykjavíkurborg fyrirtæki og einstaklinga. Fyrirtækið vinnur tilfallandi verk og notast við tengslanet annarra iðnaðarmanna ef verkefni kallar á þjónustu sem er utan sérsviðs HiH. Fyrirtækið hefur mikla og sérhæfða reynslu af tjónum sem orsakast af langvarandi leka, s.s. málum þar sem um óútskýrðar rakaskemmdir og myglu er að ræða. Vinnuferlið sem viðhaft er í slíkum málum fylgir þeim leiðbeiningum og gæðastöðlum sem tíðkast í þeim löndum sem mesta reynslu hafa af slíkum málum. Við leggjum okkur fram við að skilja og koma til móts við þarfir viðkskiptavina og ef einhverjar fyrirspurnir kunna að vakna mælum við eindregið með því að Hafa Samband.